|
|
08.12.2008 21:24:10 / sirryb
...nei, langt því frá. Nenni ekki einu sinni að kíkja hingað inn nema annað slagið og tek þessa dagana enn færri "bloggrúnta". Það er brjálað að gera í vinnunni og búið að vera nóg í skólanum en núna fer bara að líða að jólafríi í skólanum, ég á eftir eitt próf, 15. desember og ég er ekki alveg að fara að nenna að læra undir það. Er samt búin að taka til glósurnar og bækurnar sem ég þarf að lesa, það hlýtur nú að teljast til einhvers???  Af okkur er allt mjög gott að frétta, öllum líður vel og við hlökkum til jólanna  Við erum að sjálfsögðu búin að skreyta allt, nema jólatréð, og ég er búin að kaupa allar jólagjafir nema fyrir kallinn, ég er alveg að standa mig í þessu  Helgin var mjög góð, á laugardaginn fórum við í laufabrauð (vorum að fletja út, skera út og steikja laufabrauð) hjá mömmu, fram á kvöld og á sunnudaginn fór ég með skvísurnar út í sleðaferð og við fórum svo þrjár að baka piparkökur. Ég ætla að setja myndir inn á síðuna hjá skvísunni núna í kvöld, ótrúlegt en satt! Heyrumst, væntanlega fyrir jól!
»
22.11.2008 09:51:24 / sirryb
....ótrúlegt en satt! Ég ákvað að henda inn einni smá færslu. Það er allt mjög gott að frétta, ég er komin á Facebook (alveg satt) og ég er núna á Akureyri í síðustu námslotu annarinnar. Þá eru prófin eftir, 3. og 15. desember! Ég er að komast í jólastuð, það er búið að skreyta svo mikið hérna á Akureyri og bærinn er svo fallegur, mér finnst alltaf jafn gott að koma hingað, eins og ég sé bara að koma heim. Ég bjó náttúrulega hérna í fjögur ár þegar ég var í menntó  Ég hlakka til að fara heim, langar að fara að skreyta, setja upp jólaseríur og svona skemmtileg heit. Hugsa að ég baki nú samt ekkert fyrr en helgina fyrir jól, þá er ég búin í prófum. En að sjálfsögðu tökum við laufabrauðið í byrjun desember, eins og alltaf, oh það er alltaf svo æðislegt! Við keyrðum norður á miðvikudaginn, ég, mamma, pabbi og Margrétin mín og erum í bústað í Kjarnaskógi, alveg meiriháttar! Keyrum suður eftir skóla í dag en fyrst ætla ég að fara í búð og kaupa nýja diskinn með Stebba Hilmars, en ekki hvað  Jæja, ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, heyrumst fyrir jól allavega!!
»
07.09.2008 21:29:08 / sirryb
Já, þá er ég komin heim úr þessari fyrstu lotu í meistaranáminu. Verð að viðurkenna að ég held að þetta verði brjálæði, að vera að vinna 100%, 70% nám + fjölskylda og vinir en það kemur bara í ljós, það má alltaf reyna  Annars gleymdi ég náttúrulega í síðustu færslu að minnast á stærstu tíðindi þessa árs! Ég fór náttúrulega á GEORGE MICHAEL tónleika í London í lok ágúst! Vá, það var rosalegt!!! Við fórum út á fimmtudagskvöld, notuðum föstudaginn í að versla og horfðum svo að sjálfsögðu á undanúrslitaleikinn á ólympíuleikunum, en þar sem Bretar eru voðalega lítið fyrir handbolta enduðum við ásamt Rakel og Gunnari á alveg yndislega "crummy" internetkaffi, í kjallara einhvers staðar og horfum öll saman á einn lítinn skjá. Þetta var frábært! Við vorum svo túristar allan laugardaginn, fórum svo aðeins á röltið á sunnudeginum áður en tónleikanir byrjuðu. Tónleikahöllin, sem tekur að mér skilst 22 þúsund manns í sæti, var troðfull! Ég er náttúrlega búin að bíða í mörg, mörg ár eftir að komast á tónleika með uppáhaldinu mínu og það var sko alveg þess virði að bíða! Hann var magnaður, í einu orði sagt!!! Skemmti mér yndislega vel á þessum tónleikum, hló, grét, brosti, táraðist og bara allt! Ætla pottþétt að fara aftur á tónleika með honum ef ég hef tækifæri til  Jæja, þá er þetta komið nóg í bili, þarf víst að fara að læra aðeins, búin að vera að þrífa í allan dag en núna tekur lesturinn við. Heyrumst, Frú Michael 
»
03.09.2008 21:31:22 / sirryb
Jæja, tveir mánuðir síðan ég bloggaði síðast, gæti sagt að ég léti það ekki gerast aftur að það liði svona langt á milli, en við vitum betur  Eins og ég sagði í síðasta bloggi stefndi ég á nám í haust. Ég er núna fyrir norðan og byrjaði í skólanum í dag. Þetta er ekki alveg byrjað af alvöru þar sem við vorum frá kl. 10-17 í dag á nýnemadegi, þar sem það var verið að kynna fyrir okkur allt umhverfi skólans og námsins. Eitt af því sem okkur var bent á í dag var að við þyrftum að tala við maka okkar, fjölskyldu, vini og vinnuveitendur og láta þau vita að við myndum ekkert tala við þau fyrr en í maí á næsta ári þar sem álagið yrði mjög mikið í vetur  En það var líka bent á að sumir segja sig úr einu námskeiði og taka þá bara minna á önn. Jæja, ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, er að fara að sofa bráðum (ég veit að klukkan er bara 21:30 en ég svaf bara 3 tíma í nótt þar sem við Ernie Bernie, samt aðallega hún, vorum að setja upp tölvuna mína upp á nýtt). Heyrumst fljótlega, skólastelpan
»
07.07.2008 10:19:02 / sirryb
Vá hvað ég hlakka til að komast í sumarfrí  Það er búið að vera geggjað veður meira og minna í allt sumar og ég vona að það haldist þegar ég byrja í fríi 28.júlí! Kallinn og dóttirin byrja viku fyrr í sumarfríi en ég á ekki alveg nógu marga daga inni til að geta tekið langt frí. Það er allt rosa gott að frétta, við erum að hætta að leigja íbúðina okkar í byrjun ágúst og erum að henda henni á sölu, ef einhvern langar að kaupa góða þriggja herbergja íbúð í því frábæra hverfi Lindahverfi í Kópavogi  Við stefnum á að fara ekkert úr hverfinu heldur finna aðeins stærri íbúð í sama hverfi, enda Margrét að byrja á leikskóla þar í lok ágúst! Annars er það að frétta af mér að ég er að hefja nám í haust, ætla að skella mér í masterinn í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri, nám með vinnu, verður spennandi að sjá hvernig það gengur  Nenni ekki að skrifa meira í bili, er svo dauðþreytt og syfjuð eitthvað, vildi að ég væri heima sofandi undir sæng! Heyrumst, S
»
03.06.2008 15:26:19 / sirryb
Eins og allir sem þetta lesa vita, var sjómannadagurinn á síðasta sunnudag og því stærsta helgi ársins á sunnanverðum Vestfjörðum. Við fjölskyldan skelltum okkur í ferðalag eftir vinnu á fimmtudaginn og vorum komin rétt eftir miðnætti vestur. Á föstudaginn fórum ég með skvísuna mína í göngutúr og við röltum í brjáluðum hita um allan bæinn, alveg frábært að komast aðeins í rólegheitin. Seinna um daginn var svo fótboltamótið, ég er nú ekki viss um hverjir unnu mótið í ár þar sem ég skrapp yfir á Tálknó og fór minn venjulega rúnt, byrjaði í bankanum (að heimsækja Birnu), svo í sundlaugina (að heimsækja Pöllu Stínu) og svo heim til ömmu Fríðu og afa Nóa. Á föstudagskvöldinu vorum við svo bara heima í rólegheitum að dúlla okkur. Á laugardeginum kíktum við að sjálfsögðu niður á höfn að skoða ýmislegt og svo fór ég aftur með skvísuna mína í Örkina til Fríðu og Nóa, henni fannst þau alveg yndisleg og leið greinilega mjög vel hjá þeim, enda eru þau bæði alveg frábær  Alltaf jafn gott að koma til þeirra og ég ætla að kíkja á þau í sumar aftur! Um kvöldið skellti ég mér svo á ball með Fríðu "litlu" og Ólu og það var alveg geggjað ball, 450 manns takk fyrir! Það hlýtur að teljast mjög góð mæting í bæjarfélagi þar sem búa 600-700 manns! Það var ótrúlegt stuð á þessu balli og ég skemmti mér alveg konunglega, dansaði eins og brjálæðingur og hló enn meira, mágur minn fór alveg á kostum  Ég var nú bara nokkuð skynsöm eftir ballið, fór ekki í partý heldur var bara komin heim milli 4 og hálf fimm og vaknaði bara nokkuð hress á sunnudeginum  Sunnudagurinn var notaður til að kíkja á hátíðarsvæðið í Krók og svo fórum við að sjálfsögðu í kaffið í félagsheimilinu. Við fórum ekki á ballið á sunnudagskvöldinu enda er maður orðinn svo skynsamur að vera ekkert að fara á skrallið daginn áður en maður þarf að fara að keyra suður  Svo er bara allt svakalega gott að frétta af okkur, við búum enn hjá mömmu og pabba og það gengur bara alveg frábærlega vel, íbúðin okkar verður lengur í leigu þannig að það er bara flott! Jæja, þá er allavega eitt stykki blogg komið, heyrumst, S
»
04.05.2008 21:10:22 / sirryb
... allt of langt síðan ég hef sett eitthvað hérna inn af viti, ég kem með nýja færslu á morgun
»
26.01.2008 21:55:24 / sirryb
Eins og ég sagði um daginn erum við búin að kaupa lóð og ætlum að byggja okkur hús  Við fáum lóðina reyndar ekki afhenta fyrr en um áramótin og við ætlum að leigja út íbúðina okkar í amk ár, með húsgögnum og húsbúnaði að hluta. Við eigum að afhenda íbúðina eftir 8 daga og erum því byrjuð að pakka. Ég nenni nefnilega ekki að vera að því á síðustu stundu og vil skipuleggja kassana vel. Þar sem við ætlum leigja út íbúðina okkar með húsgögnum og húsbúnaði að hluta er ég búin að vera að pakka niður hlutum úr eldhúsinu sem ekki teljast algjörlega nauðsynlegur eldhúsbúnaður. Ég er búin að pakka niður 4 kössum og á nokkuð eftir. Ég skil það eftir sem telst algjörlega nauðsynlegt í eldhúsi en tek að sjálfsögðu uppáhaldshlutina mína, hluti eins og "Svínakönnuna" frá Hildi minni og kristalsglösin frá Þorgerði minni. Ég er búin að komast að því að ég á alveg ótrúlega mikið af eldhúsbúnaði sem ekki telst algjörlega nauðsynlegur. Við eigum handþeytara sem við notum aldrei af því að við eigum líka hrærivél. Við eigum fiskispaða til þess að taka fiskinn upp úr pottinum þegar hann er soðinn en við gleymum alltaf að nota hann. Við eigum kartöflustöppu-stappara en við notum hann aldrei. Við eigum tonn af áhöldum í salatið en við notum þau eiginlega aldrei því að við notum alltaf gaffal og skeið í það. Við eigum líka tonn af skálum, svo mikið að við komumst aldrei yfir að nota þær allar. Ég er sem sagt búin að komast að því að við eigum allt of mikið af eldhúsdóti. Ég er búin að komast að því að ég gæti haldið stóra "bílskúrssölu" fyrir eldhúsdót en ég veit líka að ég myndi aldrei gera það. Mér finnst nefnilega gott að eiga dót sem ég gæti mögulega þurft að nota. Einhvern tímann  Langaði bara að henda þessu inn, ætla að halda áfram að pakka!!!
»
17.01.2008 09:22:24 / sirryb
Já, það mætti bara halda að ég hafi tekið þennan dekurdag sem ég talaði um í gær, ég er allavega alveg svakalega hress í dag! Fór að sofa rúmlega 11 í gærkvöldi (sem er mjög snemmt miðað við undanfarna daga) og Margrét vaknaði bara einu sinni í nótt þannig að ég var bara úthvíld þegar litla (stóra) skvísan okkar vaknaði eldhress í morgun klukkan 6:15! Annars er allt mjög gott að frétta af okkur, við erum búin að kaupa okkur lóð í Kópavogi og fáum hana afhenta um næstu áramót. Já, við erum sem sagt að fara að byggja! Meira um það síðar. Þorrablót brottfluttra verður núna 2. febrúar og við Hildi erum að spá í að fara bara eftir matinn þar sem við borðum ekki þetta (ó góðgæti sem alltaf er á boðstólum á þorrablótum. Mig grunar nú að hún Jóhanna vilji koma með okkur, hvað segirðu um það? Hildi er reyndar að vinna þessa helgi en hún ætlar jú að reyna að redda því. Þá er þetta komið í bili  Over and out!
»
16.01.2008 08:59:53 / sirryb
Þar sem ég hef fengið afar takmarkaðan svefn síðustu vikuna var ég að hugsa um það í leiðinni í vinnuna í morgun að þetta væri ég til í akkúrat núna: - Bjútíblund í sjónvarpsherberginu í Túngötunni okkar góðu
 - Síðan myndum við fara í Pollinn með því sem tilheyrir
- Síðan myndum við fara heim og punta okkur
- Síðan myndum við spila
- Síðan myndum við færa borðstofuborðið og dansa við Toxic
- Síðan myndum við fara á Hópið og dansa
- Síðan myndum hlæja alveg ótrúlega mikið af því að það er svo gaman

Vá hvað ég er þreytt!
»
31.10.2007 20:38:05 / sirryb
Jahá, þá er ég komin heim aftur eftir geggjaða ferð til Berlínar! Fórum saman 6 vinkonurnar (æskuvinkonur að vestan) í "húsmæðraorlof"! Áttum allar stórafmæli í fyrra, fyrir utan eina á þessu ári, og í staðinn fyrir að vera að kaupa allar einhverjar rándýrar gjafir þá lögðum við bara pening inn á bók í hvert sinn sem einhver átti afmæli. Lögðum síðan minna inn þá mánuði sem engin okkar átti afmæli og héldum áfram að leggja inn á þessu ári. Á föstudaginn síðasta var síðan komið að ferðinni  Við lentum í Berlín að kvöldi föstudagsins, fórum og fengum okkur smá snarl og kíktum svo á barinn Laugardagurinn var tekinn með trompi og ég sló öll met í því að versla, stóð mig eins og hetja! Á laugardagskvöldinu fórum við á veitingastað sem kallaður er "blindi barinn" og það var þvílík upplifun. Við komum inn á veitingastaðinn, þar var svona setustofa þar sem við fengum fordrykki og völdum hvað við vildum borða. Það var ekki svona venjulegur matseðill heldur fengum við bara að velja hvort við vildum nautakjöt, lambakjöt, fiðurfénað eða fisk. Eins þurftum við að velja vínið með matnum. Allir þjónarnir á þessum stað eru alveg blindir eða mjög sjónskertir. Okkar þjónn kom til okkar og við fórum í lest (já, þurftum að vera með vinstri hendina á öxl þeirrar fyrir framan okkur) inn í eins konar völundarhús og enduðum svo inni í aðalmatsalnum þar sem var kolniðamyrkur. Við sem sagt sáum aldrei salinn, matinn eða hvora aðra. Þjónninn leiddi okkur að okkar borði, útskýrði fyrir okkur hvar hnífapörin væru og hvar við ættum að setja glösin okkar (vinstra megin að ofan var það sem ætluðum að drekka með matnum, í miðjunni vatnsglasið og hægra megin "the good stöff", í mínu tilfelli Vodka Lemon, nammi nammi). Svo kom rauðvínið og ein okkar þurfti að finna stað fyrir það og bera ábyrgð á því, svo kom vatnið og önnur þurfti að bera ábyrgð á því. Við þurftum síðan bara að finna leið til að koma flöskunum á milli án þess að hella niður á okkur! Svo kom þríréttuð máltíð og maturinn var alveg geggjaður! Sáum samt aldrei neitt og vöndumst alls ekki myrkrinu, eins og við héldum að við myndum gera! Þetta var þvílík upplifun og mæli með að allir sem fara til Berlínar fari á þennan stað! Eftir matinn fórum við á einhvern "fínan" djammstað þarna í Berlín og mér fannst bara eins og ég væri komin á Astró árið 1997! Vorum því stutt þar og fórum á fleiri staði. Við notuðum síðan sunnudaginn í að skoða borgina, því allar verslanir eru jú lokaðar á sunnudögum í Þýskalandi (kannski eins gott). Fórum svo auðvitað fínt út að borða um kvöldið og fengum okkur nokkra bjóra og fleira  Á mánudeginum fórum við auðvitað að versla aðeins meira og ég kom heim með 3 fullar ferðatöskur! Þegar við fórum í gegnum tollinn hérna heima á mánudagskvöldinu spurðu tollverðirnir okkur hvort það hefði verið eitthvað eftir í Berlín (þeim fannst við greinilega hafa verslað fullmikið  En var alveg frábær ferð í alla staði! Þá er þetta komið fínt í bili, 1.nóvember á morgun, ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða, dóttir okkar orðin 1 árs og farin að labba út um allt! Heyrumst 
»
29.09.2007 08:16:03 / sirryb
....nei, það er ekkert að snjóa, ég var bara að syngja þetta lag í huganum  Ég var að hugsa það áðan að fyrir ekki svo mörgum árum þá var maður kannski að fara að sofa hálf sjö á laugardagsmorgnum, eftir að hafa verið á djamminu daginn áður. Núna var ég komin á fætur klukkan 6:30 í morgun, á laugardagsmorgni! Ótrúlegt hvað tímarnir breytast. Hef nú aldrei verið neinn morgunhani (eða -hæna) en núna finnst mér bara ekkert mál að vakna með litlu snúllunni minni, reyndar bara gaman  Hún er að verða 1 árs í næsta mánuði, vá hvað tíminn er fljótur að líða, finnst bara eins og ég hafi verið að eiga hana í fyrradag. Annars er allt mjög fínt að frétta af okkur. Ég er byrjuð í nýju vinnunni og líst bara svakalega vel á allt þar Skemmtilegt fólk og góður mórall. Hélt að það yrði eitthvað mál að fara að vinna niðri í bæ, vesen með bílastæðamál og svoleiðis en það er bara ekkert mál og ég kem bara brosandi úr vinnunni  Ég man bara ekkert fleira í augnablikinu, nema að jú, við spiluðum kana á síðustu helgi!!! Ég, Hildi og Alvin fórum til Huldu og spiluðum til miðnættis. Síðan skelltum við okkur á Papana á Nasa og dönsuðum eins og brjálæðingar þar til þeir hættu að spila kl. 3:30! Þá kom smá diskó og við vorum að dansa til eitthvað um 4. Við settumst ekkert niður allt ballið, fyrr en í lokin þegar Hulda mín fór alveg á kostum og við hlógum svo mikið að við pissuðum næstum í okkur! Ótrúlega var gaman þetta kvöld! Síðan tókum við einn hring í bænum og svo skutlaði ég bara öllum heim því að ég var á pæjubílnum mínum  Þá er þetta komið í bili, ætla að fara að dúlla við stelpuna mína Heyrumst!
»
28.09.2007 08:43:45 / sirryb
 You're Sweden!
After years of trying to rule the world around you, you've finally put aside violence in favor of advocating peaceful resolution. There's still a little Viking in you, but mostly you like Nobel Prize winners and long nights by the fire. And safe cars. You always read the safety manual in airplanes, and you're just a little cold.
Take the Country">http://bluepyramid.org/ia/cquiz.htm">Country Quiz at the blue/">http://bluepyramid.org">Blue Pyramid
Þá er það komið á hreint, og ég sem elska Þýskaland, er að fara þangað í annað skiptið á þessu ári bráðum! Og já, ég les alltaf Manualinn, hvort sem það er öryggisdótið í flugvélum eða einhver önnur handbók! Til hvers að kaupa sér eitthvað sniðugt ef maður ætlar ekki að geta notað það til fulls?  Lofa að koma með betra blogg eftir nokkra daga 
»
07.08.2007 09:56:14 / sirryb
Já, þetta var heldur betur ljúf helgi hjá okkur. Við
brunuðum vestur á föstudaginn og vorum komin um
kvöldmatarleytið. Þar beið okkar sólkoli sem var alveg
sérlega ljúffengur á bragðið (manstu Hildi, eins og Darri eldaði
fyrir okkur). Við höfðum það síðan bara rólegt um kvöldið. Á
laugardeginum fórum við mæðgur í heimsókn á Tálknó og það er alltaf
jafn yndislegt að koma "heim". Mér finnst þessi fjörður alveg
meiriháttar, enda margar góðar minningar 
Um kvöldið eldaði tengdamamma síðan alveg geggjaðar fylltar
kjúklingabringur (hún er alveg snilldarkokkur) og eftir það fórum
við Hildi í Pollinn og vorum þar til að verða eitt um
nóttina. Hittum þar Ýr og við sátum þrjár og spjölluðum,
alveg ótrúlega næs. Ég skammast mín fyrir að segja það en ég
hef ekki farið í Pollinn síðan ég flutti og samt hef ég farið oft
vestur síðan Þessi ferð bætti það næstum því allt upp,
hún var frábær.
Á sunnudeginum fórum við á Rauðasand með tengdó og litlu
skvísuna. Það var alveg ótrúlega langt síðan ég hafði farið á
sandinn (úps, ekki síðan '88 í skólaferðalagi) sem er alveg
fáránlegt miðað við hvað þetta er stutt og að ég bjó þarna í 3
ár! Það var frábært að fara og þvílík fegurð sem er
þarna. Á næsta ári ætla ég svo í Kollsvík og á Látrabjarg en
það er nú mun styttra síðan ég fór þangað síðast.
Í gær var síðan stefnan tekin aftur suður á bóginn en ég hefði
sko alveg verið til í að vera lengur. Stefnum á að vera
lengur næsta sumar og njóta þess í botn!
Alveg frábær helgi að baki og bráðum fer ég að vinna, hlakka til
að komast aftur í rútínuna. Er búin að komast að því að það
hentar mér ekkert að vera ekki í fastri rútínu, mér verður bara svo
lítið úr verki 
Heyrumst!
»
26.06.2007 21:53:33 / sirryb
Já, ég virðist vera klaufastrumpur Þeir sem þekkja mig
vita nú alveg að ég helli ekki niður og rek mig aldrei í glös sem
eru á borðum (aha...)
Hvaða strumpur ert þú?
http://bluebuddies.com/smurf_fun/smurf_personality_test/smurf_personality_test.htm
p.s. Fannar, ég svaraði í kommentinu hérna fyrir neðan....
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
Heimsóknir
Í dag: 0 Alls: 24190
|